Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir: Sambyggð 20, íbúð 0101, Þorlákshöfn. Ný, falleg og björt 105,9m2 endaíbúð á jarðhæð með 3 stórum svefnherbergjum og góðri geymslu innan eignar. Íbúðin er með sér inngang. Úr stofunni er utangengt á góðan, hellulagðan, sérafnotaflöt sem snýr í vestur.Húsinu fylgir stór, lokuð hjóla- og vagnageymsla.
26, malbikuð, bílastæði eru við húsið, þar af 2 fyrir hreyfihamlaða, og reiðhjólaskýli. 2 rafhleðslustöðvar verða við húsið.
Fyrir framan húsið eru hellulagðar stéttar með snjóbræðslukerfi. ** Hægt er að bóka skoðun og fá allar nánari upplýsingar í síma 483 3424 og á [email protected] **Eignin telur:* Rúmgóða forstofu með stórum skáp. * Glæsilega stofu og eldhús í opnu rými.
Úr stofunni er utangengt á sérafnotaflöt. Í eldhúsi er falleg, sérsmíðuð innrétting frá Selós, vönduð AEG heimilistæki með sjálfhreinsandi ofni, spanhelluborði, viftu, innbyggðri uppþvottavél og kæli-/frystiskáp. * 3 stór svefnherbergi. Góðir fataskápar eru í öllum herbergjum. * Glæsilegt baðherbergi með sérsmíðaðri innréttingu frá Selós, upphengdu wc og sturta með sturtugleri og flísalögðum botn. Á gólfi og 2 veggjum eru vandaðar 60x60 flísar gráar að lit.
* Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara (barkalausum) á baðherberginu á snyrtilegan hátt.* Á öllum gólfum, nema baðherbergi, er eikar vínyl parket af vandaðri gerð. Innihurðar eru hvítar, yfirfelldar, með svörtum hurðarhúnum. * Við húsið er
stór, sameiginleg, lokuð hjóla- og vagnageymsla. * Á lóðinni eru 26 malbikuð bílastæði, þar af 2 fyrir hreyfihamlaða. * Gangstéttar næst húsi og gangstígar á lóð verða steypt eða hellulagt, snjóbræðslulögn í gangstíg framan við húsið og að sorpgeymslu.
Að öðru leyti verður lóð frágengin með þökum.FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.
Heimasíða fasteignasölunnar: https://www.eignin.is/
Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar: Verslun og þjónusta: Hér má m.a. finna:
KRÓNU VERSLUN
Apótekarann.
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.
Veitingastaðina:
Thai Sakhon Restaurant (facebook: thai sakhon restaurant)
Super 1 pizz
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er hér ÓB-stöð.
Caffe Bristól.
Hér er mjög góð heilsugæsla.
Hér er tannlæknir.
Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:
Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss) Landsbankinn
Tómstundir og afþreying:
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga og er aðstaða til íþróttaiðkunar öll til mikillar fyrirmyndar.
Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.
Motorcrossá braut rétt utan við bæinn.
Hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring
Golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna.
Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk. Jógastúdíó (Jógahornið). Öflug sjúkraþjálfun.
Afþreying er hér af ýmsum toga:
hér má meðal annars finna: Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga.
Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér. Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi.
Einnig er hér: Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss).
Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.) Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver) O.sfr. o.s.frv.
** Allar helstu fréttir úr sveitafélaginu má finna á www.hafnarfrettir.is