Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir í einkasölu
: Sambyggð 4, íbúð 0303, 815 Þorlákshöfn. 3ja herbergja endaíbúð með sér geymslu á jarðhæð ásamt sameiginlegri hjóla-og vagnageymslu og þvottahúsi. Gæludýr eru leyfð í húsinu.
Íbúðin er með stórum gluggum til suðurs-og norðurs, sem hleypa góðri birtu inn. ** Bóka má skoðun og fá allar nánari upplýsingar í síma 483 3424 og á [email protected] **Íbúðin telur:*
2 svefnherbergi með fataskáp í þeim báðum. Nýtt harðparket á gólfi.
* Mjög rúmgóða og bjarta stofu með stórum gluggum til vesturs og norðurs.
* Utangengt er á svalir úr stofunni.* Gott eldhús með hvítri innréttingu með viðarborðplötu. Nýtt harðparket á gólfi.
* Baðherbergi með hvítri innréttingu, flísum á gólfi og sturtuklefa. Þvottavélartengill er á baðinu.
* Anddyri / forstofa með góðum fataskáp. Nýtt harðparket á gólfi.
* Nýjar innihurðar eru í íbúðinni.
* Sér geymsla er á jarðhæð ásamt sameiginlegri hjóla- vagnageymslu.og þvottahúsi.
FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !
Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.
Heimasíða fasteignasölunnar: https://www.eignin.is/Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar:
Við Þorlákshöfn er rómaður golfvöllur sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna!
Hér eru einstaklega góður grunn- og leikskóli þar sem tekin eru inn börn niður í 18 mánaða!
Verslun og þjónusta:
Hér má m.a. finna:
Verslun Krónunnar
Apótekarann.
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.
Veitingastaðina:
Thai Sakhon veitingahús (facebook: Thai Sakhon Restaurant)
Caffe Bristól Bauhaus (facebook: Caffe Bristól)
Súper pizza
Svarta Sauðinn (facebook: svarti sauðurinn) og
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er Olís hér með ÓB-stöð.
Hér er mjög góð heilsugæsla.
Hér er tannlæknir.
Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:
Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss)
Landsbankinn
Tómstundir og afþreying:
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga. Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton, motorcrossá braut rétt utan við bæinn, hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring og golf á rómuðum golfvelli. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.
Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk.
Jógastúdíó (Jógahornið).
Öflug sjúkraþjálfun.
Afþreying er hér af ýmsum toga:
hér má meðal annars finna:
Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð.
Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga.
Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér.
Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi.
Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni.
Einnig er hér:
Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss).
Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.)
Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver)
O.sfr. o.s.frv. o.s.frv. :)
** Allar helstu fréttir úr sveitarfélaginu má finna á: www.hafnarfrettir.is