Klettamói 7, íbúð 0203 til leigu , 815 Þorlákshöfn
Tilboð
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
4 herb.
94 m2
Tilboð
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2023
Brunabótamat
57.600.000
Fasteignamat
48.850.000

Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir TIL LEIGU: Nýja 90m2 ENDAíbúð með 3 rúmgóðum svefnherbergjum á 2. hæð að Klettamóa 7, Þorlákshöfn ásamt 5m2 sér útigeymslu.     ÍBÚÐIN ER LAUS TIL AFHENDINGAR.
Íbúðin er með suður-svölum og sérinngang.   Á milli húsanna er skemmtilegt grænt svæði með leiktækjum og fleira.
* Stutt frá helstu þjónustu, skóla og íþróttasvæðum  !

**Hægt er að bóka skoðun og fá allar nánari upplýsingar í síma 483 3424 og á [email protected]**

Eignin skiptist svo:
*  Rúmgott anddyri með fataská
p.
*  3 rúmgóð svefnherbergi með góðum skápum. 
*  Fallega og bjarta stofu með stórum gluggum.  Úr stofunni er utangengt er á Suður-svalir.  Stofa og eldhús eru í opnu rými.
*  Glæsilegt eldhús með innréttingu frá HTH, helluborði, bakaraofni og háf frá AEG.  Uppþvottavél og ísskápur fylgja með.
*  Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta, upphengdu salerni, snyrtilegri innréttingu og sturtu úr glerþili.
*  Rúmgott þvottahús með flísum á gólfi.  

*  Sér geymsla fylgir íbúð. 

*  Leiguverð er 280.000,-kr. pr. mán.  Vísitölutengt.  Innifalið í leigunni er hiti.
*  3ja mánaða trygging skilyrði. 


FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !
Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.  
Heimasíða fasteignasölunnar:  https://www.eignin.is/


Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott -  hagnýtar upplýsingar:

Við Þorlákshöfn er rómaður golfvöllur sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna!
Hér eru einstaklega góður grunn- og leikskóli þar sem tekin eru inn börn niður í 18 mánaða!
Verslun og þjónusta:
Hér má m.a. finna:
VERSLUN KRÓNUNNAR
Apótekarann.
Bakaríið Café Sól (facebook:  café sól)
Hárgreiðslustofuna Kompuna (facebook:  kompan klippistofa)
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.
Veitingastaðina:
Thai Sakhon veitingahús (facebook:  Thai Sakhon Restaurant)
Caffe Bristól Bauhaus (facebook:  Caffe Bristól)
Svarta Sauðinn (facebook:  svarti sauðurinn)  og 
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar.    Einnig er Olís hér með ÓB-stöð.
Hér er mjög góð heilsugæsla.
Hér er tannlæknir.
Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins: 
Mjög gott bókasafn (facebook:  Bæjarbókasafn Ölfuss)
Landsbankinn 
Tómstundir og afþreying: 
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga. Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook:  fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook:  Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton, motorcrossá braut rétt utan við bæinn, hestamennska (facebook:  hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring og golf á rómuðum golfvelli.  Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.   
Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl.  Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk.
Jógastúdíó (Jógahornið).
Öflug sjúkraþjálfun.
Afþreying er hér af ýmsum toga:
hér má meðal annars finna:  
Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. 
Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga.
Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér.
Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi.
Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni.  
Einnig er hér:
Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss).
Hinir ýmsu kórar (facebook:  Tónar og Trix, Kyrjukórinn,  ofl.)
Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook:  Kiwanisklúbburinn Ölver)
O.sfr. o.s.frv. o.s.frv.  :)
** Allar helstu fréttir úr sveitarfélaginu má finna á:  www.hafnarfrettir.is






 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.