Grundarland 9 , 800 Selfoss
93.900.000 Kr.
Parhús/ Parhús á einni hæð
4 herb.
153 m2
93.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2020
Brunabótamat
81.400.000
Fasteignamat
85.100.000

Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir í einkasölu:  Grundarland 9, Selfossi.  Einstaklega fallegt, vandað og vel skipulagt 119m2 parhús með 3 stórum svefnherbergjum og 35m2 bílskúr.  Stór sólpallur er við húsið með heitum potti !
Húsið er staðsett í rólegum botnlanga, í einungis um 2ja mín. göngufæri frá leikskóla !

** Hægt er að bóka skoðun og fá allar nánari upplýsingar í síma 483 3424 og á [email protected] **  SJÓN ER SÖGU RÍKARI !


Eignin telur:
* Mjög rúmgóða forstofu með stórum fataskáp.
* Glæsilega stofu þaðan sem utangengt er um rennihurð á stóra verönd með heitum potti !
* Skuggafúga með ljósi er í stofunni sem gefur henni einstaklega hlýlegt yfirbragð.
* Stórglæsilegt eldhús með stórri eyju, 2 ofnum, vínkælir og góðum tækjaskáp.  Innréttingin er frá Kvik og borðplatan er frá Granítsmiðjunni (quartz steinn).   Yfir eyjunni er kastarabraut frá Lumex. 
* Stór innfelldur ísskápur og stór innfelldur frystiskápur fylgja.

* 3 stór svefnherbergi.  Mjög góðir fataskápar eru í hjónaherbergi.
** Allir skápar í húsinu eru sérsmíðaðir.
** Í  hjónaherbergi er skuggafúga með ljósi. 
* Glæsilegt baðherbergi með hvítri innréttingu með borðplötu frá Steinsmiðjunni Rein, baðkari og sturtu úr glerþili. Blöndunartæki eru innbygð frá Vola.   Skuggafúga með ljósi er á baðherbergi. 
* Úr baðherberginu er utangengt á veröndina þar sem er heitur pottur.
* Mjög rúmgott þvottahús með stórri innréttingu með vinnuborði og vask.  Úr þvottahúsinu er innangengt í bílskúrinn.

** Geymsluloft er yfir þvottahúsinu og bílskúrnum.

** Fullbúinn, rúmgóðan bílskúr. Epoxi á gólfi. 

*  Á öllum gólfum er fallegt vinyl parket frá parka.  Innfelld ljós með dimmerum eru í öllu húsinu.

** Stór, stimpil steyptur sólpallur (55 fm) er við húsið. 
** Bílaplan er með möl og steypt ruslatunnuskýli eru framan við húsið.

FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !

Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.  
Heimasíða fasteignasölunnar:  https://www.eignin.is/

 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.