Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir í einkasölu: Fallegt og vel staðsett sumarhús ásamt gestahúsi að Kaldárhöfða, sem er með stórfenglegu útsýni yfir Úlfljótsvatn og nágrenni! Umhverfis húsið er stór verönd með heitum potti og útigeymsla.
Einungis um 20 mín akstur er á Selfoss og klukkutíma akstur í Rvk. !
**Hægt er að bóka skoðun og fá allar nánari upplýsingar á [email protected] og í síma 483 3424)
Eignin telur:* Rúmgott anddyri með flísum á gólfi og fatahengi.
* Stóra og bjarta parketlagða stofu þaðan sem utangengt er á stóra verönd. Stórglæsilegt útsýni er úr stofunni yfir Úlfljótsvatn og nágrenni!* Eldhús með fallegri, hvítri innréttingu með glerskápum.
* Stofa og eldhús eru í opnu rými. * Loft í stofu og eldhúsi eru upp tekin. * 2 góð svefnherbergi með parketi á gólfi. Skápar eru í öðru herberginu.
* Baðherberbergi með flísum á gólfi, innréttingu og sturtuklefa. Gólfhiti er á baðinu.
* Þvottavélartengill er á baðinu.
* Yfir ca helmingi hússins er
milliloft sem getur nýst sem svefnrými eða geymsla.* 8m2 gestahús er við hlið aðalhúss. Húsið er vel einangrað í hólf og gólf og með gólfhita. Veggir og loft eru panilklæddir. Húsið er með opnanlegum glugga.
Sólpallur er við gestahúsið.* Við hlið húss er einnig góð, einangruð
útigeymsla með rafmagni og opnanlegum glugga. Lóðin er gróin og falleg og bílaplan með rauðamöl.
Um einstaklega fallega eign er að ræða og hvorki verður byggt framan né við húsið !
FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !
Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.
Heimasíða fasteignasölunnar: https://www.eignin.is/