Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir í einkasölu: Stórglæsilegt 94m2 sumarhús á tveimur hæðum að Guðmundarbraut 3, í um 5mínútna akstursfjarlægð frá Reykholti í Biskupstungum (Aratungu). Stórir sólpallar eru umhverfis húsið og frá því er glæsilegt útsýni til nær allra átta ! Heitur pottur er á verönd! Stór kvistur er á húsinu sem gerir efri hæðina einstaklega bjarta og skemmtilega ! Eignin er einstaklega skemmtilega staðsett, einungis 30mín akstur er á Selfoss / 15mín akstur á Flúðir, 20mín akstur á Gullfoss og Geysir og 20mín akstur á Laugarvatn.
** Hægt er að bóka skoðun og fá nánari upplýsingar í síma 483 3424 og á [email protected] **
Eignin telur: * Fallega parketlagða stofu og eldhús þaðan sem utangengt er á veröndina. Glæsileg innrétting er í eldhúsi með innfelldri uppþvottavél. * 3 góð svefnherbergi með parketi á gólfi. Skápar eru í hjónaherbergi. * Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum sturtuklefa og innréttingu undir vask. Utangengt er af baðinu á veröndina. * Geymsla með hillum. * Anddyri með flísum á gólfi. Úr anddyri er stigi upp á efri hæð hússins. * Efri hæðin er einstaklega björt og falleg með stórum kvisti ! Harðparket er á gólfi. * Hiti er í gólfum á neðri hæð.
* 16m2 einangruð útigeymsla er við hlið húss.
* Hitaveita er á svæðinu.
FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !