Fasteignasala Suðurlands (s 483-3424) kynnir í einkasölu: Borgarheiði 4V, Hveragerði. Mjög fallegt og vel staðsett parhús með 2 rúmgóðum svefnherbergjum. HÚSIÐ GETUR VERIÐ LAUST VIÐ KAUPSAMNING !
Á einfaldan hátt er hægt að útbúa 3ja svefnherbergið. Bílskúrsréttur fylgir eigninni ! Sér bílastæði er við húsið og rafhleðslu stöð!
Lóðin snýr í suður/vestur þannig að sólar nýtur allan daginn !
Húsið er skemmtilega staðsett í botnlanga, skammt frá leikskólanum Óskaland.
Sjá staðsetningu húss: https://ja.is/kort/?x=392451&y=390463&q=Borgarhei%C3%B0i%204v%2C%20810%20Hverager%C3%B0i&page=1&nz=17.00
** Hægt er að bóka skoðun og fá allar nánari upplýsingar í síma 483-3424 og á fastsud@gmail.com**
Eignin telur:
* Rúmgóða forstofu með skáp og flísum á gólfi.
* Fallega stofu og borðstofu þaðan sem utangengt er á sólpall. Sólpallurinn snýr í suður/vestur.
* 2 rúmgóð svefnherbergi. Stórir fataskápar eru í hjónaherbergi. Á einfaldan hátt er hægt að útbúa 3ja svefnherbergið.
* Eldhús með hvítri og beyki innréttingu. Flísar eru á milli skápanna.
* Ný upptekið baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, hvítri inréttingu, skáp og sturtu.
* Rúmgott þvottahús með góðum skápum. Gólfefni vantar.
* Góða geymslu með hillum.
** Geymsluloft er yfir hluta hússins.
* Nýtt harðparket er á öllum gólfum, nema blautflötum.
** Fasteignin hefur fengið gott viðhald:
Búið er að skipta um járn á þaki. Baðherbergi var endurnýjað 2019. Lagnir frá eldhúsi og inn á bað voru endurnýjaðar 2019. Skipt var um gler að hluta 2019. Sett var á nýtt parket 2022.
Þakskyggni á norður og suðurhlið var endurnýjað 2022.
** Samkvæmt upphaflegri teikningu hússins (sú sem sjá má í myndasafni) var eldhús í sama rými og stofan er og svefnherbergi þar sem eldhúsið er núna og þannig var skipulagið lengi vel.Á tiltölulega einfaldan hátt væri hægt að færa eldhúsið á sinn upphaflega stað og fjölga svefnherbergjum í 3 og jafnvel í 4 ef borðstofu væri einnig breytt í svefnherbergi !
FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !
Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.
Heimasíða fasteignasölunnar: https://www.eignin.is/