Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir í einkasölu fallega 2ja herbergja íbúð með sér inngangi á 2. hæð að Sambyggð 16, Þorlákshöfn.
Á gangi framan við íbúð er sér geymsla.
**Hægt er að bóka skoðun og fá allar nánari upplýsingar í síma 483 3424 og á fastsud@gmail.com**
Eignin telur:
* 1 stórt svefnherbergi með fataskáp.
* Rúmgóða stofu þaðan sem utangengt er á suður-svalir.
* Eldhús með hvítri og viðarinnréttingu. Stofa og eldhús eru í opnu rými.
* Baðherbergi með hvítri innréttingu og sturtuklefa. Dúkur á gólfi.
* Anddyri.
* Á snyrtilegan hátt er búið að koma þvottavél og þurrkara fyrir í anddyri íbúðarinnar.
* Harðparket er á gólfi í stofu, eldhúsi, gangi og á svefnherbergi.
* 5m2 sér geymsla er við hlið íbúðarinnar.
* Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er á jarðhæð.
* Bílaplan er malbikað og lóðin þökulögð.
* Dýrahald er heimilt í húsinu.
* Húsið er klætt að utan með steni og báru og því viðhaldslítið.
FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !
Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.
Heimasíða fasteignasölunnar: https://www.eignin.is/
Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar:
Verslun og þjónusta: Hér má m.a. finna:
VERSLUN KRÓNUNNAR
Apótekarann.
Hárgreiðslustofuna Kompuna (facebook: kompan klippistofa)
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.
Veitingastaðina:
Thai Sakhon Restaurant (facebook: thai sakhon restaurant)
Svarta Sauðinn (facebook: svarti sauðurinn)
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er hér ÓB-stöð.
Caffe Bristól.
Hér er mjög góð heilsugæsla.
Hér er tannlæknir.
Tómstundir og afþreying:
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga og er aðstaða til íþróttaiðkunar öll til mikillar fyrirmyndar.
Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.
Motorcrossá braut rétt utan við bæinn.
Fjallahjólagarður.
Hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring
Golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna.
Afþreying er hér af ýmsum toga:
hér má meðal annars finna: Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga.
Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér. Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi.
Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni.
Einnig er hér: Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss).
Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.) Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver) O.sfr. o.s.frv.
** Allar helstu fréttir úr sveitarfélaginu má finna á: www.hafnarfrettir.is