Klængsbúð 8 , Þorlákshöfn
66.900.000 Kr.
Raðhús
4 herb.
127 m2
66.900.000
Stofur
1
Herbergi
4
Baðherbergi
1
Svefnherbergi
3
Byggingaár
2021
Brunabótamat
63.700.000
Fasteignamat
55.400.000
Sjá allar myndir stórar Teikningar DEILA Senda á vin

Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir í einkasölu:  Klængsbúð 8, Þorlákshöfn.  Stórglæsilegt, nýlegt, endaraðhús með 3 stórum svefnherbergjum og bílskúr. 
Húsið er staðsett örstutt frá skóla-, leikskóla og íþróttasvæði!  Garðurinn snýr í suður/vestur þannig að sólar nýtur allan daginn !


** Hægt er að bóka skoðun og fá allar nánari upplýsingar í síma 483 3424 og á fastsud@gmail.com **

Eignin telur:

* Góða og bjarta forstofu með fataskáp.
* 3 stór svefnherbergi, öll með fataskápum.  (á teikningum er 1 herbergið merkt sem geymsla).
* Bjarta og fallega stofu þaðan sem utangengt er í garðinn.  
* Garðurinn snýr í suður/vestur þannig að sólar nýtur allan daginn !
* Glæsilegt eldhús með hvítri háglans innréttingu með stórri eyju.  Stofa og eldhús eru í opnu rými.
* Á öllum gólfum nema blautflötum er harðparket. 
* Glæsilegt baðherbergi með svartri innréttingu, upphengdu wc og sturtu úr glerþili.  Flísar eru á gólfi og á sturtuvegg.
* Inn af baðherbergi er flísalagt þvottahús.  Rennihurð skilur að baðherbergi og þvottahús !
* Rúmgóðan bílskúr.   
* Möl er í bílaplani en lóð er ófrágengin.  


**Sjón er sögu ríkari !

FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !


Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.  
Heimasíða fasteignasölunnar:  https://www.eignin.is/
 

Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar: 
Verslun og þjónusta: Hér má m.a. finna: 
VERSLUN KRÓNUNNAR
Apótekarann.
Hárgreiðslustofuna Kompuna (facebook: kompan klippistofa)
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.

Veitingastaðina: Thai Sakhon Restaurant (facebook: thai sakhon restaurant)
Svarta Sauðinn (facebook: svarti sauðurinn)
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er hér ÓB-stöð.
Caffe Bristól.

Hér er mjög góð heilsugæsla.
Hér er tannlæknir.

Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:
Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss) Landsbankinn

Tómstundir og afþreying:
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga og er aðstaða til íþróttaiðkunar öll til mikillar fyrirmyndar.
Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.
Motorcrossá braut rétt utan við bæinn.
Hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring
Golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna.

Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk. Jógastúdíó (Jógahornið). Öflug sjúkraþjálfun.

Afþreying er hér af ýmsum toga:

hér má meðal annars finna: Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga. 
Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér. Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi. 
Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni. 
Einnig er hér: Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss). 
Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.) Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver) O.sfr. o.s.frv.  
** Allar helstu fréttir úr sveitarfélaginu má finna á: www.hafnarfrettir.is





Senda fyrirspurn vegna

Klængsbúð 8

CAPTCHA code


Guðbjörg Heimisdóttir
Löggiltur fasteigna-fyrirtækja- og skipasali