Klettamói 5, 0202, HLUTDEILDARLÁN Í BOÐI , Þorlákshöfn
44.800.000 Kr.
Fjölbýlishús
3 herb.
67 m2
44.800.000
Stofur
1
Herbergi
3
Baðherbergi
1
Svefnherbergi
2
Byggingaár
2024
Brunabótamat
0
Fasteignamat
2.100.000
Sjá allar myndir stórar Teikningar DEILA Senda á vin

HLUTDEILDARLÁN Í BOÐI !
Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir í samvinnu við Eignamiðlun:   Klettamói 5, Íbúð 0202.  Falleg 3ja herbergja, 67,7m2 miðjuíbúð á 2.hæð með sér geymslu.  Íbúðin afhendist fullbúin og er með sérinngang.  ** Stutt frá helstu þjónustu, skóla og íþróttasvæðum. 
** Sjá skilalýsingu:  https://moabyggd.is/pdf/klettamoi-5-moabyggd-skilalysing-2023-08-14.pdf 
** Sjá staðsetningu á korti: https://ja.is/kort/?x=382704&y=374923&q=Klettam%C3%B3i%205%2C%20815%20%C3%9Eorl%C3%A1ksh%C3%B6fn&page=1&nz=16.57
** SJÁ UPPLÝSINGAR UM HLUTDEILDARLÁN:  https://hms.is/husnaedi/lan-til-einstaklinga/husnaedislan/hlutdeildarlan

** Hægt er að fá að skoða samdægurs - allar nánari upplýsingar í síma 483 3424 og á fastsud@gmail.com**

Eignin skiptist svo:
Rúmgott anddyri með fataskáp.
 2 svefnherbergi með góðum skápum. 
Stofu þaðan sem utangengt er á suðursvalir.  Stofa og eldhús eru í opnu rými.
Eldhús með innréttingu frá HTH, helluborð og bakaraofn og háfur frá AEG fylgja með.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta, upphengdu salerni, snyrtilegri innréttingu og sturtu.
Þvottahús:  þvottavélartengill á baði
Sér geymsla fylgir íbúð sem og sameiginleg hjóla-og vagnageymsla.
Lagnaleið að bílastæðum fyrir hleðslustöðvar. 

Húsið eru staðsteypt fjölbýlishús á tveimur hæðum við miðbæ Þorlákshafnar. Í húsinu eru 6 íbúðir ásamt geymslum.
Lögð er áhersla á að öll umgjörð hverfisins verði hlý og aðlaðandi með lágstemmdri byggð sem skiptist í nokkra kjarna sem tengjast saman með vistgötum.

FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !


Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.  
Heimasíða fasteignasölunnar:  https://www.eignin.is/

 

Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott -  hagnýtar upplýsingar:

Við Þorlákshöfn er rómaður golfvöllur sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna!

Hér eru einstaklega góður grunn- og leikskóli þar sem tekin eru inn börn niður í 18 mánaða!

Verslun og þjónusta:

Hér má m.a. finna:

VERSLUN KRÓNUNNAR
Apótekarann.

Bakaríið Café Sól (facebook:  café sól)

Hárgreiðslustofuna Kompuna (facebook:  kompan klippistofa)

Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)

Vínbúðina.

Veitingastaðina:

Thai Sakhon veitingahús (facebook:  Thai Sakhon Restaurant)

Caffe Bristól Bauhaus (facebook:  Caffe Bristól)

Svarta Sauðinn (facebook:  svarti sauðurinn)  og 

Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar.    Einnig er Olís hér með ÓB-stöð.

Hér er mjög góð heilsugæsla.

Hér er tannlæknir.

Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins: 

Mjög gott bókasafn (facebook:  Bæjarbókasafn Ölfuss)

Landsbankinn 

Tómstundir og afþreying: 
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga. Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook:  fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook:  Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton, motorcrossá braut rétt utan við bæinn, hestamennska (facebook:  hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring og golf á rómuðum golfvelli.  Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.   

Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl.  Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk.

Jógastúdíó (Jógahornið).

Öflug sjúkraþjálfun.

Afþreying er hér af ýmsum toga:

hér má meðal annars finna:  

Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. 

Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga.

Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér.

Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi.

Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni.  

Einnig er hér:

Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss).

Hinir ýmsu kórar (facebook:  Tónar og Trix, Kyrjukórinn,  ofl.)

Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook:  Kiwanisklúbburinn Ölver)

O.sfr. o.s.frv. o.s.frv.  :)

** Allar helstu fréttir úr sveitarfélaginu má finna á:  www.hafnarfrettir.is








 





Senda fyrirspurn vegna

Klettamói 5, 0202, HLUTDEILDARLÁN Í BOÐI

CAPTCHA code


Guðbjörg Heimisdóttir
Löggiltur fasteigna-fyrirtækja- og skipasali