Hnjúkamói 10, Nýjar, fjölbreyttar íbúðir. , Þorlákshöfn
Tilboð
Fjölbýlishús
herb.
0 m2
Tilboð
Stofur
Herbergi
Baðherbergi
1
Svefnherbergi
Byggingaár
2023
Brunabótamat
0
Fasteignamat
0
Sjá allar myndir stórar Teikningar DEILA Senda á vin

Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424 ) kynnir í samvinnu við Eignamiðlun:  Hnjúkamói 10, Þorlákshöfn.  Glæsilegar nýjar íbúðir í vel staðsettu tveggja hæða fjölbýlishúsi í Móabyggð í Þorlákshöfn.  Íbúðirnar skilast fullbúnar, án gólfefna, en með flísum á baðherbergi.  Íbúðirnar eru tilbúnar til afhendingar !

** NÁNARI UPPLÝSINGAR UM HVERJA EIGN MÁ FINNA Á:  https://www.eignin.is/ **


** Hægt er að fá að skoða samdægurs - allar nánari upplýsingar í síma 483 3424 og á fastsud@gmail.com**

*  Íbúðirnar eru frá 70m2 - 95m2
*  Íbúðirnar eru 3-4ra herbergja.*
*  Verð íbúðanna er frá 43,8m til 54,8m. 
*  Frábær staðsetning í nýju hverfi.
*  Sér geymsla fylgir öllum íbúðum.
*  Íbúðirnar eru allar með sérinngang. 
*  Stutt frá helstu þjónustu, skóla og íþróttasvæðum. 


Eignirnar skiptast svo:
*  Rúmgott anddyri með fataskáp.
*  2-3 svefnherbergi með góðum skápum. 
*  Stofu þaðan sem utangengt er á svalir.  Stofa og eldhús eru í opnu rými.
*  Eldhús með innréttingu frá HTH, helluborð og bakaraofn og háfur frá AEG fylgja með.
*  Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta, upphengdu salerni, snyrtilegri innréttingu og sturtu.
*  Tengi fyrir þvottavél er á baðherbergi.
*   Sérgeymsla fylgir hverri íbúð.
*  Lagnaleið að bílastæðum fyrir hleðslustöðvar. 


Húsin eru staðsteypt fjölbýlishús á tveimur hæðum við miðbæ Þorlákshafnar. Í húsinu eru 8 íbúðir ásamt geymslum.
Lögð er áhersla á að öll umgjörð hverfisins verði hlý og aðlaðandi með lágstemmdri byggð sem skiptist í nokkra kjarna sem tengjast saman með vistgötum.
Allar íbúðir hafa sérinngang. 

Hnjúkamói 10, skilalýsing:  https://moabyggd.is/pdf/hnjukamoi-10-moabyggd-skilalysing-2023-01-30.pdf

FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !

Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.  
Heimasíða fasteignasölunnar:  https://www.eignin.is/

 

Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott -  hagnýtar upplýsingar:

Við Þorlákshöfn er rómaður golfvöllur sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna!

Hér eru einstaklega góður grunn- og leikskóli þar sem tekin eru inn börn niður í 18 mánaða!

Verslun og þjónusta:

Hér má m.a. finna:

VERSLUN KRÓNUNNAR
Apótekarann.

Bakaríið Café Sól (facebook:  café sól)

Hárgreiðslustofuna Kompuna (facebook:  kompan klippistofa)

Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)

Vínbúðina.

Veitingastaðina:

Thai Sakhon veitingahús (facebook:  Thai Sakhon Restaurant)

Caffe Bristól Bauhaus (facebook:  Caffe Bristól)

Svarta Sauðinn (facebook:  svarti sauðurinn)  og 

Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar.    Einnig er Olís hér með ÓB-stöð.

Hér er mjög góð heilsugæsla.

Hér er tannlæknir.

Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins: 

Mjög gott bókasafn (facebook:  Bæjarbókasafn Ölfuss)

Landsbankinn 

Tómstundir og afþreying: 
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga. Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook:  fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook:  Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton, motorcrossá braut rétt utan við bæinn, hestamennska (facebook:  hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring og golf á rómuðum golfvelli.  Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.   

Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl.  Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk.

Jógastúdíó (Jógahornið).

Öflug sjúkraþjálfun.

Afþreying er hér af ýmsum toga:

hér má meðal annars finna:  

Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. 

Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga.

Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér.

Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi.

Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni.  

Einnig er hér:

Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss).

Hinir ýmsu kórar (facebook:  Tónar og Trix, Kyrjukórinn,  ofl.)

Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook:  Kiwanisklúbburinn Ölver)

O.sfr. o.s.frv. o.s.frv.  :)

** Allar helstu fréttir úr sveitarfélaginu má finna á:  www.hafnarfrettir.is








 





Senda fyrirspurn vegna

Hnjúkamói 10, Nýjar, fjölbreyttar íbúðir.

CAPTCHA code


Guðbjörg Heimisdóttir
Löggiltur fasteigna-fyrirtækja- og skipasali