Egilsbraut 18, efri sérhæð með bílskúr , Þorlákshöfn
53.900.000 Kr.
Sérhæð
4 herb.
115 m2
53.900.000
Stofur
1
Herbergi
4
Baðherbergi
1
Svefnherbergi
3
Byggingaár
1957
Brunabótamat
50.190.000
Fasteignamat
36.600.000
Sjá allar myndir stórar Teikningar DEILA Senda á vin

Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir í einkasölu:  Einstaklega huggulega 4ra herbergja íbúð á efri hæð í snyrtilegu og mikið endurnýjuðu tvíbýlishúsi ásamt bílskúr að Egilsbraut 18, Þorlákshöfn. 15m2 rými í risi hússins sem  nýta má á ýmsa vegu er ekki inni í m2 fjölda eignarinnar.  Seljandi klárar frágang á rýminu.   
KJÖRIN FYRSTA EIGN !

Eignin er afar vel staðsett, örstutt frá grunn- og leikskóla ásamt íþróttasvæði !   


** Bóka má skoðu og fá allar nánari upplýsingar á fastsud@gmail.com og í síma 483 3424 **

Eignin skiptist svo:

*  Gengið er upp á stigapall framan við íbúðina um rúmgóðan, hringlaga, teppalagðan stigaAfar stór gluggi er á stigaganginum sem hleypir góðri birtu inn.
Forstofa með flísum á gólfi og fatahengi. 
*  Utangengt er á góðar svalir úr forstofunni.
Fallega og bjarta stofu.  Fallegt útsýni til hásuðurs er úr stofunni.  
3 svefnherbergi, þar af 2 rúmgóð.  Fataskápar eru í hjónaherbergi.
Fallegt eldhús með snyrtilegri, hvítri innréttingu með góðu skápaplássi og góðum borðkrók.  
*  Nýlegt harðparket er á öllum gólfum, nema baðherbergi. 
Búr með hillum er inn af eldhúsi.  (Hægt er að stækka eldhúsið inn í búrið, ef vill).
*  Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, hvítri innréttingu og baðkari með sturtu.
*  Sameiginlegt þvottahús er á jarðhæð.  
*  Í risi hússins er mjög skemmtilegt ca 15m2 rými sem hægt er að nýta á marga vegu (manngengt að stórum hluta).  Seljendur klára að klæða rýmið.  Nýr, fellistigi liggur upp í risið úr forstofu.  


** Eignin hefur fengið mjög gott viðhald: 
Að innan er búið að draga nýtt allt rafmagn og skipta um neysluvatn í eldhúsi og hitaveitulagnir. Eldhúsinnrétting er ekki upprunaleg.
Að utan hefur húsið verið klætt að utan og skipt um járn á þaki.og þakrennur verið endurnýjaðar.  

Bílskúrinn er fullfrágenginn.  Nýtt járn er á þaki skúrsins en klæða þyrfti hann að utan. Nýtt rafmagn er í skúrnum sem og heitt og kalt vatn ásamt nýjum vatnsofni.  Ný aksturshurð er einnig á skúrnum.

** Sjón er sögu ríkari !

FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !


Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.  
Heimasíða fasteignasölunnar:  https://www.eignin.is/

Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar: 
Verslun og þjónusta: Hér má m.a. finna: 
Verslun Krónunnar 
Apótekarann.
Hárgreiðslustofuna Kompuna (facebook: kompan klippistofa)
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.


Veitingastaðina: Thai Sakhon Restaurant (facebook: thai sakhon restaurant)
Svarta Sauðinn (facebook: svarti sauðurinn)
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er hér ÓB-stöð.
Caffe Bristól.

Hér er mjög góð heilsugæsla.
Hér er tannlæknir.

Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:
Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss) Landsbankinn

Tómstundir og afþreying:
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga og er aðstaða til íþróttaiðkunar öll til mikillar fyrirmyndar.
Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.
Motorcrossá braut rétt utan við bæinn.
Hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring
Golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna.

Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk. Jógastúdíó (Jógahornið). Öflug sjúkraþjálfun.

Afþreying er hér af ýmsum toga:

hér má meðal annars finna: Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga. 
Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér. Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi. 
Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni. 
Einnig er hér: Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss). 
Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.) Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver) O.sfr. o.s.frv.  
** Allar helstu fréttir úr sveitarfélaginu má finna á: www.hafnarfrettir.is


 

 





Senda fyrirspurn vegna

Egilsbraut 18, efri sérhæð með bílskúr

CAPTCHA code


Guðbjörg Heimisdóttir
Löggiltur fasteigna-fyrirtækja- og skipasali