Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir: Núpahraun 8, Þorlákshöfn, nýtt, glæsilegt, endaraðhús með 3 svefnherbergjum og bílskúr. Húsið er einstaklega skemmtilega skipulagt og snýr stofan i suður/vestur, þannig að sólar nýtur frá morgni til kvölds!
Húsið er laust til afhendingar!
Húsið er nær viðhaldslaust og er klætt að utan með ljósu og dökkgráu bárustáli og dökkgráum gluggum og hurðum og dökkgráu þakstáli !
* Bóka má skoðun og fá allar nánari upplýsingar í síma 483 3424 og á fastsud@gmail.com *
Húsið skiptist svo:
* Anddyri.
* 3 stór svefnherbergi.
* Fallega stofu og eldhús í opnu rými. Utangengt er úr stofunni í garðinn.
* Baðherbergi.
* Þvottahús, þaðan sem utangengt er í garðinn.
* Bílskúr.
Húsið afhendist tilbúið til málunar (á byggingarstigi 5 skv. íst-51, gamli staðillinn) samkvæmt neðangreindri lýsingu:
Loft eru upp tekinn. Eftir er að klæða loftaklæðningu en raflagnir og lagnagrind komin upp.
Á þaki er Ranilla bárað þakstál dökk grátt.
Álrennur eru utaná þakkant
Gluggar og hurðir: Gluggar eru ál-tré gluggar frá viðurkenndum aðila. Gluggar eru hvítir RAL9010 að innan en gráir 6 að utan.
Hitakerfi: Búið er að leggja gólfhitalagnir og tengja saman við tengigrind. Stýringar og annar búnaður gólfhita fylgir ekki.
Raflagnir: Búið er að leggja út ídráttarrör og dósir og draga fyrir vinnurafmagni. Tafla er ófrágengin.
Gólf: Gólf eru steypt og afhendast flotdregin.
Lóð : Lóð er grófjöfnuð með mulningi í plani. Sorptunnuskýli á lóð eru komin.
Gert er ráð fyrir rafhleðslu fyrir rafbíla. Hleðslustöð fylgir ekki.
Skjólveggir og verandir eru ekki innifaldar en mælst er til að samræmi sé gætt á milli íbúða í efnisvali og útfærslu til að gæta að heildarútliti húsins.
FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !
Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.
Heimasíða fasteignasölunnar: https://www.eignin.is/
Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar:
Verslun og þjónusta: Hér má m.a. finna:
Apótekarann.
Bakaríið Kaffi skjóðan (facebook: Kaffiskjóðan)
Hárgreiðslustofuna Kompuna (facebook: kompan klippistofa)
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.
Verslun Krónunnar
Veitingastaðina:
Thai Sakhon Restaurant (facebook: thai sakhon restaurant)
Caffe Bristól.
Svarta Sauðinn (facebook: svarti sauðurinn)
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er hér ÓB-stöð.
Hér er mjög góð heilsugæsla.
Tómstundir og afþreying:
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga og er aðstaða til íþróttaiðkunar öll til mikillar fyrirmyndar.
Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.
Motorcrossá braut rétt utan við bæinn.
Hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring
Golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna.
Afþreying er hér af ýmsum toga:
hér má meðal annars finna: Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga.