Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir: Núpahraun 14, Þorlákshöfn. Nýtt og einstaklega skemmtilega skipulagt endaraðhús með 3 stórum svefnherbergjum og bílskúr, samtals 139m2.
Húsið afhendist á byggingarstigi 5 í október 2021. Hægt er að fá húsið afhent fullbúið !
Húsið er timburhús, klætt að utan með dökkgráum báruplötum og standandi lerki á móti! Hvítar eða eikar innihurðir fylgja með tilbúnar til uppsettningar!
* Allar nánari upplýsingar má nálgast á fastsud@gmail.com og í síma 483 3424 *
Húsið skiptist svo:
Anddyri * 3 stór svefnherbergi * stofa og eldhús í opnu rými, utangengt er í garðinn úr stofunni * baðherbergi * þvottahús/geymslu, þaðan sem er utangengt og bílskúr.
Húsið afhendist tilbúið til innréttingar (á byggingarstigi 5, skv. íst-staðli):
Útveggir eru klæddir lituðu bárastáli, dökkgráu RR23, (Ruukki 50 plus)
Á þaki verður Ranilla bárað þakstál, dökkgrátt RR23 (Ruukki 30)
Álrennur eru utaná þakkant.
Gluggar og hurðir: Gluggar eru ál-tré gluggar frá viðurkenndum aðila. Gluggar eru hvítir RAL9010 að innan en gráir 6 að utan.
Að innan skilast veggir tilbúnir til málunar.
Loft eru upp tekinn og á eftir að klæða loftaklæðningu, en raflagnir og lagnagrind komin upp.
Innveggir eru klæddir 13mm harðgipsi.
Hvítar eða eikar innihurðir fylgja með tilbúnar til uppsettingar.
Gólf: Gólf eru steypt og afhendast flotdregin.
Hitakerfi: Búið er að leggja gólfhitalagnir og tengja saman við tengigrind. Stýringar og annar búnaður gólfhita fylgir ekki.
Raflagnir: Búið er að leggja út ídráttarrör og dósir og draga fyrir vinnurafmagni. Tafla er ófrágengin.
Lóð : Lóð er grófjöfnuð með mulningi í plani. Sorptunnuskýli á lóð eru komin.
Kaupandi borgar skipulagsgjald
Seljandi greiðir lóðargjald og öll tengigjöld rafmagns og vatns.
Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar:
Við Þorlákshöfn er rómaður golfvöllur sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna!
Hér eru einstaklega góður grunn- og leikskóli þar sem tekin eru inn börn niður í 18 mánaða!
Verslun og þjónusta:
Hér má m.a. finna:
Apótekarann.
Bakaríið Café Sól (facebook: café sól)
Hárgreiðslustofuna Kompuna (facebook: kompan klippistofa)
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.
Kr.-verslun með yfir 2.000 helstu vöruliði á Krónuverði
Veitingastaðina:
Hendur í Höfn, kaffihús, veitingastað og glerlistasmiðju (hendurihofn.is og
facebook: hendur í höfn)
Meitilinn (facebook: Meitillinn veitingahús)
Svarta Sauðinn (facebook: svarti sauðurinn) og
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er Olís hér með ÓB-stöð.
Hér er mjög góð heilsugæsla.
Hér er tannlæknir.
Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:
Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss)
Landsbankinn
og útibú Póstsins
Tómstundir og afþreying:
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga. Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton, motorcrossá braut rétt utan við bæinn, hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring og golf á rómuðum golfvelli. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.
Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk.
Jógastúdíó (Jógahornið).
Öflug sjúkraþjálfun.
Afþreying er hér af ýmsum toga:
hér má meðal annars finna:
Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð.
Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga.
Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér.
Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi.
Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni.
Einnig er hér:
Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss).
Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.)
Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver)
O.sfr. o.s.frv. o.s.frv. :)
** Allar helstu fréttir úr sveitarfélaginu má finna á: www.hafnarfrettir.is