Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir: Katlahraun 2, Þorlákshöfn: NÝTT, Glæsilegt og vel skipulagt 111m2 endaraðhús með bílskúr.
2 stór svefnherbergi og góður bílskúr ! Húsið verður staðsett í nýskipulögðu hverfi og afhendist á byggingarstigi 5, í júlí 2021.
Húsið telur: Anddyri, 2 stór svefnherbergi, stofu og eldhús í fallegu opnu rými, þvottahús/geymslu, baðherbergi og rúmgóðan bílskúr.
Hægt er að fá húsið afhent fullbúið !
(tölvugerðar myndir af húsi í auglýsingu er til viðmiðunar)
**Allar nánari upplýsingar má nálgast hjá Fasteignasölu Suðurlands á fastsud@gmail.com og í síma 483 3424 **
Almenn lýsing: Allur frágangur er í samræmi við nýjustu staðla og reglugerðir.
Húsið er úr forsteyptum einingum frá Einingaverksmiðjunni og afhendist svo:
Sökklar:Undirstaða hússins er steinsteypt botnplata og forsteyptir sökklar á þjappaðri fyllingu. Lagnir : Gólfhitalagnir eru ísteyptar. Allur frágangur skv. byggignarstigi 5. Raflagnir: Í samræmi við byggingarstig 5. Útveggir: Útveggir eru með stálmótaáferð. Gluggar, hurðir og gler fullfrágengið: Bílskúrshurð er stálfellihurð. Á milli íbúðar og bílskúrs er eldvarnarhurð. Gluggar eru hvítir ál/tré gluggar.
Þak: Þak er úr holplötueiningum frá Einingaverksmiðjunni. Þakdúkur og einangrun frá Firestone. Loft: Gert er ráð fyrir CLIPSO dúklofti niðurtekið með innfelldri lýsingu. A+ orkuvottun. Mikil hljóðvist. Frágangur miðast við byggingastigi 5. Þ.e undirvinnu fyrir þessa lausn. http://clipso.is/thjonusta-og-radgjof/taeknilegar-upplysingar/ Innveggir: frágangur skv. byggingarstigi 5 og eru frá 12-20cm að þykkt. Lóð: Grófjöfnuð.
Pússuð áferð er á útveggjum.
(tölvugerð mynd af húsi í auglýsingu er til viðmiðunar)
Verktaki: Byggingafélagið Borg ehf.
Teiknistofa: Pro-Ark Teiknistofa.
Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar:
Við Þorlákshöfn er rómaður golfvöllur sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna! Hér eru einstaklega góður grunn- og leikskóli þar sem tekin eru inn börn niður í 18 mánaða! Verslun og þjónusta:Hér má m.a. finna: Apótekarann. Bakaríið Café Sól (facebook: café sól) Hárgreiðslustofuna Kompuna (facebook: kompan klippistofa) Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari) Vínbúðina. Kr.-verslun með yfir 2.000 helstu vöruliði á Krónuverði Veitingastaðina: Hendur í Höfn, kaffihús, veitingastað og glerlistasmiðju (hendurihofn.is og facebook: hendur í höfn) Meitilinn (facebook: Meitillinn veitingahús) Svarta Sauðinn (facebook: svarti sauðurinn) og Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er Olís hér með ÓB-stöð. Hérer mjög góð heilsugæsla.
Hér er tannlæknir.
Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins: Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss)Landsbankinn og útibú Póstsins Tómstundir og afþreying: Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga. Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton, motorcrossá braut rétt utan við bæinn, hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring og golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri. Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk.Jógastúdíó (Jógahornið).
Öflug sjúkraþjálfun. Afþreying er hér af ýmsum toga:hér má meðal annars finna: Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga.
Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér. Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi. Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni. Einnig er hér:Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss).Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.)Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver)O.sfr. o.s.frv.o.s.frv. :) ** Allar helstu fréttir úr sveitarfélaginu má finna á: www.hafnarfrettir.is