Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir: Katlahraun 8, Þorlákshöfn. NÝTT, Glæsilegt 111m2 endaraðhús með bílskúr sem staðsett verður í nýskipulögðu hverfi. Afhending í júlí 2021 ! Hægt er að fá húsið afhent fullbúið ! Sjá nánari upplýsingar á: www.borgbygg.is/
**Allar nánari upplýsingar má nálgast hjá Fasteignasölu Suðurlands á fastsud@gmail.com og í síma 483 3424 **
Almenn lýsing: Allur frágangur er í samræmi við nýjustu staðla og reglugerðir.
Samkvæmt teikningu telur húsið:
* Forstofu * 2 stór svefnherbergi * Eldhús * Stofu * Eldhús og stofa eru í opnu rými * Baðherbergi * Þvottahús og geymslu * Bílskúr.
Frágangur:
Sökklar: Undirstaða hússins er steinsteypt botnplata og forsteyptir sökklar á þjappaðri fyllingu.
Lagnir : Gólfhitalagnir eru ísteyptar. Allur frágangur skv. byggignarstigi 5.
Raflagnir: Í samræmi við byggingarstig 5.
Útveggir: Útveggir eru með stálmótaáferð.
Gluggar, hurðir og gler fullfrágengið:
Bílskúrshurð er stálfellihurð. Á milli íbúðar og bílskúrs er eldvarnarhurð.
Gluggar eru hvítir ál/tré gluggar.
Þak: Þak er úr holplötueiningum frá Einingaverksmiðjunni. Þakdúkur frá Firestone.
Loft: Gert er ráð fyrir CLIPSO dúklofti niðurtekið með innfelldri lýsingu. A+ orkuvottun. Mikil hljóðvist. Frágangur miðast við byggingastigi 5. Þ.e undirvinnu fyrir þessa lausn. http://clipso.is/thjonusta-og-radgjof/taeknilegar-upplysingar/
Innveggir: frágangur skv. byggingarstigi 5 og eru frá 12-20cm að þykkt.
Lóð: Grófjöfnuð.
Pússuð áferð er á útveggjum.
(tölvugerð mynd af húsi í auglýsingu er til viðmiðunar)
Verktaki: Byggingafélagið Borg ehf.
Teiknistofa: Pro-Ark Teiknistofa.
Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar:
Við Þorlákshöfn er rómaður golfvöllur sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna!
Hér eru einstaklega góður grunn- og leikskóli þar sem tekin eru inn börn niður í 18 mánaða!
Verslun og þjónusta:
Hér má m.a. finna:
Apótekarann.
Bakaríið Café Sól (facebook: café sól)
Hárgreiðslustofuna Kompuna (facebook: kompan klippistofa)
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.
Kr.-verslun með yfir 2.000 helstu vöruliði á Krónuverði
Veitingastaðina:
Hendur í Höfn, kaffihús, veitingastað og glerlistasmiðju (hendurihofn.is og
facebook: hendur í höfn)
Meitilinn (facebook: Meitillinn veitingahús)
Svarta Sauðinn (facebook: svarti sauðurinn) og
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er Olís hér með ÓB-stöð.
Hér er mjög góð heilsugæsla.
Hér er tannlæknir.
Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:
Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss)
Landsbankinn
og útibú Póstsins
Tómstundir og afþreying:
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga. Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton, motorcrossá braut rétt utan við bæinn, hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring og golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.
Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk.
Jógastúdíó (Jógahornið).
Öflug sjúkraþjálfun.
Afþreying er hér af ýmsum toga:
hér má meðal annars finna:
Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð.
Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga.
Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér.
Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi.
Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni.
Einnig er hér:
Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss).
Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.)
Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver)
O.sfr. o.s.frv. o.s.frv. :)
** Allar helstu fréttir úr sveitarfélaginu má finna á: www.hafnarfrettir.is