Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir í einkasölu: NÝ ! 87,8m2 ENDAÍBÚÐ Á 2.HÆÐ (merkt 0201) AÐ SAMBYGGÐ 18 Í ÞORLÁKSHÖFN.
**LYFTA ER Í HÚSINU ! 3 STÓR SVEFNHERBERGI ! FRÁBÆR FYRSTU KAUP ! ÍBÚÐIN AFHENDIST FULLFRÁGENGIN (utan fataskápa) !
* Áhugasamir geta haft samband við Fasteignasölu Suðurlands á fastsud@gmail.com eða í síma 483 3424 *
(tölvugerð mynd af húsi í auglýsingu er til viðmiðunar)
Íbúðin afhendist fullfrágengin (utan fataskápa) skv. neðangreindri lýsingu:
* Flísalögð forstofa.
* 3 stór svefnherbergi.
* Eldhús og stofa í opnu rými.
* Úr stofunni er utangengt á rúmgóðar svalir.
* Í eldhúsi verður hvít há-glans sprautulökkuð innrétting, með grárri borðplötu og á milli borðplötu og efri skápa í eldhúsi verður plata klædd burstuðu stáli.
* Helluborð, bakarofn og vifta fylgja íbúðinni.
* Baðherbergi verður með hvítri há-glans sprautulakkaðri innréttingu með grárri borðplötu, upphengt wc, sturta með glerþili, flísar á gólfi og á vegg við sturtu.
* Geymsla er í íbúð.
* Fallegt harðparket verður á öllum gólfum utan forstofu og baðs.
* Hvítar hurðar verða í íbúðinni og útihurð verður í sama lit og gluggar, (grey antacrit) blágrá.
* Íbúðin verður máluð í ljósum lit.
** Lóðinni verður skilað fullkláraðri með gangstéttum og bílastæðum ásamt lýsingu.
Sorpskýli verða fyrir utan.
Utan á húsið kemur álklæðning frá Vírnet Límtré. Á þaki verður Firestone þakdúkur
* Gert er ráð fyrir rafbílahleðslu í bílastæði.
* Byggingaraðili er Pró Hús ehf. Allar nánari upplýsingar um Pró-Hús og byggingafyrirkomulagið má finna á heimasíðu þeirra: www.prohus.is"
(tölvugerð mynd af húsi í auglýsingu er til viðmiðunar)
Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar:
Verslun og þjónusta:
Hér má m.a. finna:
Apótekarann.
Bakaríið Café Sól (facebook: café sól)
Hárgreiðslustofuna Kompuna (facebook: kompan klippistofa)
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.
Kr.-verslun með yfir 2.000 helstu vöruliði á Krónuverði
Veitingastaðina:
Hendur í Höfn, kaffihús, veitingastað og glerlistasmiðju (hendurihofn.is og
facebook: hendur í höfn)
Meitilinn (facebook: Meitillinn veitingahús)
Svarta Sauðinn (facebook: svarti sauðurinn) og
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er Olís hér með ÓB-stöð.
Hér er mjög góð heilsugæsla.
Hér er tannlæknir.
Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:
Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss)
Landsbankinn
og útibú Póstsins
Tómstundir og afþreying:
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga. Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton, motorcrossá braut rétt utan við bæinn, hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring og golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.
Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk.
Jógastúdíó (Jógahornið).
Öflug sjúkraþjálfun.
Afþreying er hér af ýmsum toga:
hér má meðal annars finna:
Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð.
Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga.
Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér.
Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi.
Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni.
Einnig er hér:
Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss).
Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.)
Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver)
O.sfr. o.s.frv. o.s.frv. :)
** Allar helstu fréttir úr sveitarfélaginu má finna á: www.hafnarfrettir.is