Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir: Ísleifsbúð 2, Þorlákshöfn. Nýtt, einstaklega skemmtilega skipulagt, 224m2 endaraðhús með sambyggðum bílskúr. ** 4 stór svefnherbergi eru í húsinu og 2 baðherbergi. **
** Hægt er að bóka skoðun og fá allar nánari upplýsingar á fastsud@gmail.com og í síma 483 3424 **
Húsið skiptist svo:
* 4 stór svefnherbergi. Stórir skápar eru í öllum herbergjum.
* 2 baðherbergi, þar af 1 inn af hjónaherbergi. Baðherbergin eru bæði glæsileg og mjög rúmgóð, með flísum á gólfi og veggjum, upphengdu wc og hvítri innréttingu. Í báðum baðherbergjum er sturta með glerþili.
* Stóra stofu og borðstofu þaðan sem utangengt er í garðinn á sólpall.
* Rúmgott sjónvarpshol.
* Mjög rúmgott eldhús með hvítri innréttingu og vönduðum heimilistækjum.
* Gott þvottahús með innréttingu og vask í borði. Flísar á gólfi.
* Anddyri með stórum skáp.
* Rúmgóðan bílskúr með millilofti að hluta. Epoxy á gólfi.
* Fallegt harðparket er á öllum gólfum, nema blautrýmum.
Frágangur:
Lagnir: Gólfhitalagnir eru ísteyptar.
Útveggir: Útveggir eru forsteyptir og málaðir í gráum lit.
Innveggir: Innveggir eru klæddir 12mm spónaplötum og gipsi yfir.
Gluggar, hurðar og gler: Vandaðir plastgluggar og hurðar eru í húsinu.
Þak: Þak er með aluzink báru. Þakrennur og rennuniðurfallsrör eru úr járni. Þakkantar eru frágengnir með útiljósum.
Loft: Loft er upp tekið yfir alrými.
Bílskúr: Bílskúr er með málmaksturshurð.
* Lóð og bílaplan: lóð tyrfð og möl í plani.
Seljandi greiðir skipulagsgjald.
Byggingaraðili: Trésmíðar Sæmundar ehf.
** Í Þorlákshöfn eru allar vegalengdir innanbæjar mjög stuttar og að hámarki 10-15mínútna gangur í alla helstu þjónustu, eins og grunn- og leikskóla, íþróttasvæði og verslun!
Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar:
Hér eru einstaklega góður grunnskóli sem og leikskóli þar sem tekin eru inn börn niður í 18 mánaða!
Verslun og þjónusta:
Hér má m.a. finna:
Apótekarann.
Bakaríið Café Sól (facebook: café sól)
Hárgreiðslustofuna Kompuna (facebook: kompan klippistofa)
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.
Kr.-verslun með yfir 2.000 helstu vöruliði á Krónuverði
Veitingastaðina:
Hendur í Höfn, kaffihús, veitingastað og glerlistasmiðju (hendurihofn.is og
facebook: hendur í höfn)
Meitilinn (facebook: Meitillinn veitingahús)
Svarta Sauðinn (facebook: svarti sauðurinn) og
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er Olís hér með ÓB-stöð.
Hér er mjög góð heilsugæsla.
Hér er tannlæknir.
Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:
Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss)
Landsbankinn
og útibú Póstsins
Tómstundir og afþreying:
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga. Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton, motorcrossá braut rétt utan við bæinn, hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring og golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.
Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk.
Jógastúdíó (Jógahornið).
Öflug sjúkraþjálfun.
Afþreying er hér af ýmsum toga:
hér má meðal annars finna:
Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð.
Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga.
Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér.
Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi.
Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni.
Einnig er hér:
Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss).
Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.)
Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver)
O.sfr. o.s.frv. o.s.frv. :)
** Allar helstu fréttir úr sveitarfélaginu má finna á: www.hafnarfrettir.is