Hnjúkamói 8, íbúð 0203 , 815 Þorlákshöfn
46.800.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
3 herb.
70 m2
46.800.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
0
Inngangur
Sér
Byggingaár
2024
Brunabótamat
0
Fasteignamat
2.140.000

Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir, í samvinnu við Eignamiðlun:  Hnjúkamói 8, íbúð 0203;  Falleg 3ja herbergja íbúð með sér geymslu á efri hæð í nýju fjölbýlishúsi við miðbæ Þorlákshafnar.  Íbúðin skilast fullbúin (án gólfefna).  Íbúðin er með sérinngang. Húsið er viðhaldslítið, klætt að utan með smábáru og sléttri málmklæðningu. 
Bílastæði er malbikað.  Sérafnotaréttur af bílastæði fylgir hverri eign auk gestastæða á svæðinu.  Lagnaleið fyrir rafhleðslustöðvar fyrir bíla liggja úr hverju húsi að bílastæðum þess húss.
Miðsvæðis milli bygginga er dvalarsvæði ætlað til útivistar og leiksvæði.

** Bóka má skoðun og fá allar nánari upplýsingar á [email protected] og í síma 483 3424 **


** Það athugist að myndir í auglýsingu gefa ekki rétta mynd af skipulagi íbúðarinnar, heldur eru einungis til að sýna útlit innréttinga og gólfefna **

ÍBÚÐIN SKILAST SVO:

Forstofa með fataskáp frá HTH.   Fataskápar ná upp í loft með aðfellu. Innvols innréttinga og fataskápa er hvítt, grindur í fataskápum eru krómaðar.
*  Rúmgott alrými sem telur stofu og eldhús, þaðan sem utangengt er á suðursvalir!   
*  Í eldhús er vönduð innrétting frá HTH.  Eldhúsinnrétting er með harðplastlagðri borðplötu. Skúffur eru með mjúklokun. Vifta er innbyggð í eldhúsinnréttingu. Led lýsing er undir efri skápum. Gert er ráð fyrir að hægt sé að hafa innbyggðan ísskáp og uppþvottavél og fylgja framhliðar.  
Heimilistæki eru að viðurkenndri gerð, AEG frá Ormsson. Span helluborð og bakaraofn með sjálfhreinsikerfi. Í eldhúsi er stál eldhúsvaskur með einnar handar blöndunartæki.
*  Úr stofunni er utangengt á suður-svalir !
*  Fallegt baðherbergi með vandaðri innréttingu frá HTH.  Gólf á baðherbergi er flísalagt. Hluti veggja, sturtuhorn baðherbergis er flísalagt með 30x60 flísum.   Á baðherbergi er vegghengt salerni. Baðinnrétting er með handlaug í borði og einnar handar blöndunartæki. Handklæðaofn er á baðherbergi. Blöndunartæki í sturtu eru utanáliggjandi sturtutæki. 
*  Þvottavélartengill er á baðherberginu.  
** Allar innréttingarnar frá HTH eru í ljósum mokkalit með melamine filmu á og eru þær allar svansvottaðar.  Allar innréttingar og fataskápar eru með mjúklokun. 
*  2 góð svefnherbergi,öll með hvítum, sprautulökkuðum fataskápum með  mjúklokun.  Fataskápar ná upp í loft með aðfellu. Innvols innréttinga og fataskápa er hvítt, grindur í fataskápum eru krómaðar.
Innihurðar eru yfirfelldar plastlagðar hvítar hurðar með hurðarhúnum úr stáli frá Húsasmiðjunni.
Ljóskúplar eru í lofti baðherbergi, eldhúsi og í geymslu.
Öll íbúðin er máluð í hvítum lit.  
*  Sér geymsla fylgir íbúðinni.

Nánari skilalýsing: https://moabyggd.is/pdf/hnjukamoi-10-moabyggd-skilalysing-2023-01-30.pdf


** Sjón er sögu ríkari ! **
Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott -  hagnýtar upplýsingar:

Við Þorlákshöfn er rómaður golfvöllur sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna!

Hér eru einstaklega góður grunn- og leikskóli þar sem tekin eru inn börn niður í 18 mánaða!
Verslun og þjónusta:
Hér má m.a. finna:
Verslun Krónunnar
Apótekarann.
Hárgreiðslustofuna Kompuna (facebook:  kompan klippistofa)
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.
Veitingastaðina:
Thai Sakhon veitingahús (facebook:  Thai Sakhon Restaurant)
Caffe Bristól (facebook:  Caffe Bristól)
Svarta Sauðinn (facebook:  svarti sauðurinn)  og 
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar.    Einnig er Olís hér með ÓB-stöð.
Hér er mjög góð heilsugæsla.
Hér er tannlæknir.
Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins: 
Mjög gott bókasafn (facebook:  Bæjarbókasafn Ölfuss)
Landsbankinn 
Tómstundir og afþreying: 
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga. Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook:  fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook:  Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton, motorcrossá braut rétt utan við bæinn, hestamennska (facebook:  hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring og golf á rómuðum golfvelli.  Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.   
Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl.  Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk.
Jógastúdíó (Jógahornið).
Öflug sjúkraþjálfun.
Afþreying er hér af ýmsum toga:
hér má meðal annars finna:  
Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. 
Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga.
Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér.
Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi.
Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni.  
Einnig er hér:
Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss).
Hinir ýmsu kórar (facebook:  Tónar og Trix, Kyrjukórinn,  ofl.)
Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook:  Kiwanisklúbburinn Ölver)
O.sfr. o.s.frv. o.s.frv.  :)
** Allar helstu fréttir úr sveitarfélaginu má finna á:  www.hafnarfrettir.is

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.